Flokkar:

Flugfréttir.is
Flugfréttir er fréttasíða um grasrót flugsins.


26.07.2010 09:47

Flug með krabbameinsveik börn

Á laugardaginn var árlegt flug einkaflugmanna með krabbameinsveik börn og fjölskyldur þeirra.  Þetta árið var flogið frá Kaldármelum og voru átta flugvélar en það voru TF-STR, NEW, SEX, GMG, KLM, REF, ULF og RLR.  Gekk flugið mjög vel og var ekki annað hægt að sjá á krökkunum að þetta var enn einu sinni hápunktur ferðarinnar.  Myndir frá fluginu eru komnar inn á myndasíðu Flugfrétta.


Verið að fara með krakka um borð.


Höður á TF-NEW að fara eina ferð sína


Valur á TF-STR lendir á Kaldármelum.

Flugmennirnir og aðstoðarmenn t.f.v. Maggnús Vikingur TF-REF, Snorri Kristleifsson TF-SEX, Arnar Bergþórsson TF-RLR, Höður Guðlaugsson TF-NEW, Guðlaugur aðst.maður, Valur Stefánsson TF-STR, Valur Pálmi aðst.maður, Örn Johnson TF-ULF, Guðni Þorbjörnsson og Jón Tynes sem sáðu m.a. um að fylgja farþegum í vélarnar.  Á myndina vantar Þengil Oddson á TF-KLM og flugmanninn á TF-GMG en nafn hans vantar.
Lokað fyrir athugasemdir


clockhere

Um:

Ritstjóri: Valur Stefánsson Ljósmyndarar: Valur Stefánsson valur66@gmail.com Guðlaugur Agnar gudlauguragnar@gmail.com Valur Pálmi valurpalmi@internet.is

Tenglar