FréttirFlugfréttir 18.7.2010Part M vinnuhópurAðilar á vegum Flugmálafélags Íslands hafa verið í viðræðum við Samgönguráðuneytið varðandi Part-M viðhaldsmál flugvéla, er nú komið svo að í byrjun ágúst mánaðar fer í gang vinnuhópur þar sem aðili frá Samgönguráðuneytinu, Flugmálastjórn og fjórir á vegum FMÍ koma til með að fara yfir reglugerðir og kanna hvað og hvort ekki sé hægt að breyta þeim reglum sem þegar eru komnar í gagnið til að gera flugvélaeigendum og flugvirkjum einfaldara um vik að halda einkaflugvélum með gilt lofthæfisskírteini.
Fyrir helgina kom eftirfarandi tilkynning frá FMS vegna TBO á bulluhreyflum. "Flugmálastjórn hefur ákveðið að útfæra kröfur sem gerir umráðendum loftfara í atvinnu-, verk- og kennsluflugi með bulluhreyfla kleift að framlengja TBO. Vinna við útfærslu er ekki lokið, en þeir sem eru með hreyfla nálagt TBO og hafa hug á að nýta sér þessa útfærslu geta haft samband við deildastjóra lofthæfi- og skrásetningardeildar með t-pósti (omar@caa.is) til að fá upplýsingar."
vs Til bakaFara á upphafssíðu
|