14.06.2010 00:15
Pétur P. Johnson hefur komið vef sýnum aftur í loftið og þegar komnar inn nokkrar gamlar og skemmtilegar myndir frá fyrstu Múlakotsmyndunum. Vonumst við til þess að Pétur haldi áfram að setja inn myndir frá fyrri tíð.
Sjá má síðu Péturs
hér en að auki er hún komin í tenglasafnið hér til hliðar.
Þessa mynd hér að neðan er úr safni Péturs og er tekin í Múlakot 1985, vélin er TF-KAN Fleet Finch árgerð 1942 sem var lengst í eigu Árna Guðmundssonar í Múlakoti og Erlings Jóhannessonar sem einnig á TF-KAU.
