Flokkar:

Flugfréttir.is
Flugfréttir er fréttasíða um grasrót flugsins.


23.06.2010 20:59

Silfur Jodelinn fyrri hluti 24. júní

Enn varð að fresta keppninni og er hún nú fyrirhuguð fimmtudaginn 24. júní n.k.

Fyrri hluti Silfur-Jódel lendingakeppninnar 2010 fer fram fimmtudagskvöldið 24. júní á Tungubakkaflugvelli. Þeir sem ætla að taka þátt mæti ekki seinna en klukkan 19:00.

Öllum flugmönnum er heimil þátttaka og eru menn hvattir til að mæta á staðinn og taka þátt. Athugið að besti árangur úr öðrum hvorum hluta Silfur-Jodelsins telur til úrslita þannig að t.d. er hægt að sigra þó aðeins sé tekið þátt í öðrum hlutanum.


TF-RVM á keppninni 2009
Sigurður Georgsson á vél sinni TF-RVM í keppninni í fyrra.
Lokað fyrir athugasemdir


clockhere

Um:

Ritstjóri: Valur Stefánsson Ljósmyndarar: Valur Stefánsson valur66@gmail.com Guðlaugur Agnar gudlauguragnar@gmail.com Valur Pálmi valurpalmi@internet.is

Tenglar