12.05.2010 11:48
48% hækkun á 100LL avgasi
Skeljungur hækkaði í morgun lítraverð á avgasi 100LL fyrir smærri flugvélar um rúm 48%. Er þessi óhóflega hækkun rothögg fyrir grasrótina og skiptir þá ekki máli hvort heldur er einkaflug eða kennsluflug.
Samkvæmt síðustu tilkynningu frá Olís (10.05.10) þá er verðið töluvert ódýrara hjá þeim, því miður fengust ekki tölur frá N1.
Tegund eldsneytis Skeljungur Olís N1
Avgas 100LL 269,5 267,3 n/a verð m.v. af dælu.
Félag Íslenskra Einkaflugmanna hefur sent beiðni til Skeljungs að þeir geri grein fyrir þessari óhóflegu hækkun.
Hér fyrir neðan má sjá verðskrá Skeljungs eftir hækkun.
Reykjavík 269,5
Ísafjörður 283,2
Akureyri 276,3
Egilsst. 283,2
Höfn 283,2
Keflavík 269,5
Bakki 283,2