Flokkar:

Flugfréttir.is
Flugfréttir er fréttasíða um grasrót flugsins.


30.04.2010 08:45

Waco YKS-7 á Flugsafnið á Akureyri

Flugsafnið á Akureyri fékk í vikunni Waco YKS-7, flugvél sömu gerðar og sú fyrsta sem Flugfélag Akureyrar keypti árið 1937.

Vélin er framleidd í apríl það ár, um sama leyti og gamli TF-ÖRN, sem þekktur er af gömlum ljósmyndum af Pollinum á Akureyri.

Vélin er í mjög góðu ásigkomulagi og verður flughæf þegar búið verður að setja hana saman.  Það má því búast við því að hún sjáist á flugi yfir Akureyri í sumar.


Við Waco vélina standa f.v. Svanbjörn sigurðsson, Arngrímur Jóhannsson, Hermann J. Tómasson og Gestur Einar Jónasson.  ljósm. Þorgeir Baldursson.
Lokað fyrir athugasemdir


clockhere

Um:

Ritstjóri: Valur Stefánsson Ljósmyndarar: Valur Stefánsson valur66@gmail.com Guðlaugur Agnar gudlauguragnar@gmail.com Valur Pálmi valurpalmi@internet.is

Tenglar