Níu Piper Apache vélar hafa verið skráðar hér á landi en auk þess var ein með ferjuflugsskráningu TF-AID en hún fórst í hafinu milli Gander og Narsarssuaq, einnig hefur N3294P verið hér í fjögur ár. Þessar vélar þóttu góðar kennsluvélar þó svo að vélarnar sem hafa verið með 150hp hafi þótt frekar kraftlytlar. LÓAn TF-LOA og N-3294P eru þær einu sem hafa verið Geronimo "moddaðar" en eins og sést hér að neðan þá var EGGinu TF-EGG breytt í Geronimo eftir að hún var seld úr landi. Því miður höfum við enga mynd af TF-JEP en ef einhver á slíka þá hvetjum við viðkomandi til að senda okkur hana til birtingar hér á síðunni.
Ljósm. Reynir Þór Guðmundsson. 100 TF-JMH Piper PA-23-150 Apache árgerð 1957, fyrsta skráning N3107P. Tryggvi Helgason keypti þessa vél í Bandaríkjunum í samvinnu við Rauðakross íslands árið 1959. Þetta var fyrsta tveggja hreyfla flugvélin í þessum stærðarflokki hér á landi. Vélin var mikið notuð bæði sjúkraflug og einnig í síldarleitinni og voru flugmenn á henni m.a. Hallgrímur "Moni" Jónsson, Árni Sigurbergsson, Kristján Árnason, Arngrímur Jóhannsson o.fl. Vélin komst í eigu þeirra Haðar Guðlaugssonar, Guðmundar Sigurbergssonar og Guðmundar Þ. Björnssonar 1990 og gerðu þeir hana upp í flughæft ástand. Þeir félagar seldu vélina "heim" til Akureyrar 2005 og er hún í dag fljúgandi sýningagripur á Flugsafni Akureyrar.
Ljósm. Árni Guðmundsson 108 TF-BAA Piper PA-23-150 Apache árgerð 1956, fyrsta skráning N2031P. Flugskólinn Þytur keypti þessa vél til landsins 1961 en eigendur eftir það voru m.a. Flugfélagið Freyr, Flugskóli Helga Jónssonar, Guðbjörn Charlesson og frá 1999 hefur Jóhann Þ. Gunnarsson átt vélina. BAA var ein af þeim síðustu sem stunduðu síldarleitarflug við Ísland ásamt JMH.
Ljósm. Árni Guðmundsson 129 TF-ELL Piper PA-23-235 Apache árg. 1963, fyrsta skráning N4948P og seinni skráning LN-NFN. Guðbjörn charlesson er skráður fyrsti eigandi vélarinnar hér á landi 1964 en eftir það áttu Vestanflug hf. Flugstöðin hf og síðast Karl Olaf Idland vélina en hún var seld til Noregs 1997. ELLið var eina 235hp Apache vélin.
Ljósm. Árni Guðmundsson 175 TF-HOF Piper PA-23-150 Apache árg. 1958, fyrst skráð N4012P. Fyrsti eigandi hér á landi var Guðmundur Sigurbergsson flugvirki en eftir 1978 þá hann ásamt Ómari Ragnarssyni. Vélin liggur í básum við Hótel Loftleiði og er mjög illa farin ef ekki ónýt.
Ljósm. Árni Guðmundsson
189 TF-EGG Piper PA-23-160 Apache, árg. 1962, fyrst skráð G-ASDG. Fyrsti eigandi vélarinnar hér á landi 1969 er skráður Flugstöðin hf. en eftir það eru m.a. skráðir eigendur Ármann Óskarsson o.fl. Flugfélag Austurlands hf. K. Þorgeir Magnússon o.fl. Mýflug hf. Flugskólinn Loft og síðast Flugklúbburinn Lágflug sem seldi vélina til Panama.
195 TF-BAR Piper PA-23-150 Apache árg. 1956, fyrst skráð VR-NBG, 5N-ABG, A-ATKA. Vélin var fyrst skráð hér á landi 18.08.70 og var fyrsti eigandi hennar Flugleiðir í Vestmannaeyjum en eftir það voru m.a. Stefán Árnason, Bragi Ragnarsson og Eigendafélagið TF-BAR. BARinn var rifinn á Reykjavíkurflugvelli.
196 TF-JEP Piper PA-23-160 Apache árg. 1961 fyrst skráð G-ARJX. JEPpinn var fyrst skráður 11.08.1979 en brotlennti á Keflavíkurflugvelli 16. ágúst sama ár. Því miður fundum við ekki mynd af TF-JEP og biðjum við ykkur lesendur góðir að senda okkur mynd ef þið hafið undir höndum.
Ljósm. Árni Guðmundsson 208 TF-REF Piper PA-23-160 Apache, árg. 1958, fyrst skráð N4002P. REFurinn var fyrst skráður 17.05.71 hér á landi og voru fyrstu eigendur Vængir hf. Guðjón Sigurgeirsson eignast vélina 1979 og Pétur Einarsson f.v. Flugmálastjóri 1981. 20. júní 1990 brotlennti REFurinn í Öxnadal og eyðilagðist en engin slys urðu á farþegum né flugmanni.
Ljósm. Árni Guðmundsson
Ljósm. Árni Guðmundsson. 209 TF-LOA Piper PA-23-180 Apache Geronimo. árg. 1955, fyrst skráð N1307P. Fyrsti eigandi hennar hér á landi 1971 var Flugþjónusta Björns Pálssonar, eigendur eftir það voru m.a. Flugstöðin hf. Stefán Árnason og Bárður Daníelsson, en 1974 var einkennisstöfum hennar breytt í TF-MAO. Árið 1981 voru eigendur Hreinn Hauksson og Hafþór Helgason. TF-MAO fórst í slæmu skyggni út af Vestfjörðum 26. október 1982 og með henni flugmaður hennar Hafþór Helgason kaupfélagsstjóri.
8803 TF-AID Piper PA-23-150 Apache. Ekki er vitað um fyrstu skráningu hennar en TF-AID voru ferjuflugsstafirnir. Það var Flugskólinn Flugsýn sem keypti vélina til landsins og voru það Loftleiða flugmennirnir Stefán Magnússon og Þórður Úlfarsson sem fóru utan til Bandaríkjanna að sækja vélina. Vélin fórst milli Gander á Nýfundnalandi og Narsarssuaq 18. mars ´63 og flugmennirnir með henni. Talið var að mikil ísing hefði orðið orsakavaldurinn að þessu hörmulega slysi. Engar myndir eru til af þessari vél.
Ljósm. Guðlaugur Agnar Valsson N3294P Piper PA-23-180 Apache Geronimo. Þessi vél hefur verið hér á landi síðan 2006 en það er Höður Guðlaugsson einkaflugmaður sem er með vélina hér á landi. N3294P hefur unnið til tvennra verðlauna á Osh Kosh flughátíðinni.