Flokkar:

Flugfréttir.is
Flugfréttir er fréttasíða um grasrót flugsins.


14.03.2010 18:06

Jodel flugvélar

Níu Jodel flugvélar hafa verið skráðar hér á landi og eru fimm þeirra enn flughæfar en það eru 410 TF-ULF, 433 TF-DUI (ex TF-RJR), 446 TF-REF (ex TF-JDL), 588 TF-ULV og 922 TF-REX.  Hér fyrir neðan má sjá myndir af öllum níu vélunum sem skráðar hafa verið og eru fleiri myndir að finna í myndaalbúmi Flugfrétta, allar þessar myndir tók Árni heitinn Guðmundsson frá Múlakoti.  Þeir félagar Örn Johnson og Jón Karl Snorrason hafa átt í flestum þessara véla.  Mjög fróðlega lesningu er að finna um Jodel vélar á heimasíðu Flugklúbbs Mosfellsbæjar www.fkm.is



355 TF-ULF Jodel DR-250 árgerð 1966.  Örn Johnson átti vélina í upphafi en 1984 var einkennisstöfum hennar breytt í TF-ULE.  Vélin brotlennti við Selfossflugvöll 7. júlí 1984 og eyðilagðist.



410 TF-ULF  Jodel D-140 árgerð 1964.  Vélin var flutt inn 1984 og er enn í fullu fjöri og mikið flogið, þeir félagar Örn Johnson og Jón Karl Snorrason eru eigendur þessara vélar.



433 TF-RJR Jodel DR-250 árgerð 1967.  Ragnar J. Ragnarsson flutti vélina til landsins 1982 og átti hana til 1993 er Jón Karl Snorrason eignast hana en Ragnar eignast hana aftur 1998 og á hana til 2003 er hann selur Árna Guðmundssyni í Múlakot vélina en Árni selur hana norður til Akureyrar 2008 og er eigandi hennar í dag Georg Tryggvason og ber hún einkennisstafina TF-DUI.



445 TF-JDL Jodel D-140 árgerð 1959.  Vélin var flutt til landsins 1983 og áttu Guðmundur Haraldsson o.fl. vélina til 1991 er Jón Karl Snorrason eignast hana en frá 1999 hefur Maggnús Vikingur Grímsson átt vélina og ber hún einkennisstafina TF-REF


460 TF-LAK Jodel DR-220.  Vélin er fyrst skráð 1984 og þá eigendur Eyþór Þórarinsson o.fl. 1986 er hún leigð Flugklúbbi Egilsstaða en frá 2002 eru skráðir eigendur Jón Karl Snorrason, Örn Johnson o.fl. og breyttu þeir einkennisstöfum vélarinnar í TF-TOF. Vélinni hlekktist á í lendingu við Stóru Bót í apríl 2004 og skemmdist mikið.



486 TF-ROB Jodel DR-221 árgerð 1968.  Árni Guðmundsson í Múlakoti flutti þessa vél til landsins 1985 en 1991 selur hann Ragnari J. Ragnarssyni vélina.  Flugfélagið Geirfugl eignast hana 1998.  Vélin skemmdist mikið í lendingu á Reykjavíkurflugvelli 14.04.2000 og er nú í endurbyggingu hjá Ólafi Sigurjónssyni í Forsæti en þar er einmitt þessi mynd tekin.


588 TF-ULV Jodel DR1050 árgerð 1960.  Vélin var flutt til landsins 1980 var Örn Johnson skráður fyrsti eigendi hennar.  Frá 1991 eru skráðir eigendur Árni Sigvaldason o.fl.  Vélin hefur verið í "make over" í Mosó og flýgur vonandi á vor mánuðum 2010.


778  TF-YRD Jodel Jodel D9 árgerð 1999.  Fyrsti eigandi vélarinnar var skráður Maggnus Vikingur Grímsson en frá 1999 eru skráðir Örn Johnson o.fl.


922  TF-REX Jodel D117A árgerð 1960.  Vélin var skráð hér á landi 2004 og eigendi hennar Jón Karl Snorrason.

Lokað fyrir athugasemdir


clockhere

Um:

Ritstjóri: Valur Stefánsson Ljósmyndarar: Valur Stefánsson valur66@gmail.com Guðlaugur Agnar gudlauguragnar@gmail.com Valur Pálmi valurpalmi@internet.is

Tenglar