Flokkar:

Flugfréttir.is
Flugfréttir er fréttasíða um grasrót flugsins.


Fréttir

Flugfréttir

7.2.2010

Ercoupe 415C

Erco Ercope 415C

Erco Ercoupe 415-C var first framleidd 1940 og var hún framleidd sem "easy to fly" m.a. þar sem engir rudder petalar voru í henna en stýringin var í gegnum stýrið sjálft og átti það að gera hana öruggari m.a. vegan stall og spin sem átti ekki að vera hægt að setja hana í.  Ercoupe 415-C var fyrsta "General Aviation" velin sem framleidd var með nefhjóli.  Framleiðslu vélanna var hætt 1941 vegna seinni heimstyrjaldarinnar því nota þurfti allt ál í hernaðarskyni, var þetta ekki í eina skiptið sem framleiðslu vélanna var stöðvuð eða takmörkuð því 1951 gerðist það einnig vegna Kóreu stríðsins.

Fimm Erco Ercoupe vélar hafa verið til hér á landi, fjórar af þeim voru- hafa verið með sömu einkennisstafina en ein þeirra TF-ROK bar einnig einkennisstafina TF-RCK.  Allar myndirnar sem við birtum koma úr myndasafni Árna heitins Guðmundssonar í Múlakoti en því miður finnst bara mynd af TF-ATC þar sem hún liggur skemmd við Hellu í júní 1958.

Við hvetjum þá sem hafa reynslu af þessum velum að skrifa í athugasemdir hvað þeim fannst um vélarnar og hvaða velum þeir flugu.


Fyrsti Ercoupinn var 78, TF-ATC árgerð 1946 en hún var flutt til landsins 1954 og var Flugklúbburinn Gandur skráður fyrsti eigandi en Flugskólinn Þytur eignast hana 1958.  Vélin eyðilagðist við Hellu 27.06.1958. 


Annar í röðinni var 80, TF-KBA árgerð 1946 en hún var flutt til landsins 1954 og voru Benedikt Sigurðsson o.fl. skráðir fyrstu eigendur en aðrir sem hafa átt hana eru þúsund þjalasmiðurinn Árni Sigurbergsson, Bárður Daníelsson o.fl. og Kristján Mikaelsson o.fl.  vélin er enn til en óflughæf og var afskráð 1979.


Númer þrjú í röðinni var 81, TF-EHA árgerð 1946 sem var flutt til landsins 1954 en þó nokkrir eigendur hafa verið á þessari vél m.a. Steindór J, Hjaltalín o.fl. Karl G. Karlsson o.fl. Kristján Friðjónsson o.fl. Haraldur Tyrvingsson o.fl. Jörgen Moestrup, Albert Baldursson og frá 2009 Arngrímur Jóhannsson f.v. flugstjóri. 


Númer fjögur í röðinni var 84, TF-ROK einnig árgerð 1946 og flutt til landsins 1954 eins og hinar fyrri, all margir hafa átt þessa vél í gegnum árin: Baldvin Jónsson o.fl. Jón G. Guðmundsson o.fl. Ármann Óskarsson o.fl. Flugsýn hf. Valgeir Stefánsson o.fl. Marvin Friðriksson o.fl. Björn Lúðvíksson o.fl. Kristján Mikaelsson o.fl. Kjarni sf, J. Friðriksson,  og Guðmundur Tr. Kristinsson.  1960 var einkennisstöfum hennar breytt í TF-RCK.  Vélin var afskráð 1979 en er til í dag óflughæf.


Síðasti Ercoupinn er ekki af sömu árgerð og hinir 1946 og ekki fluttur til landsins 1954 en þetta er 658, TF-ZZZ árgerð 1941 og var flutt til landsins 1991 af Jóhannesi Fossdal sem átti hana til 2003 en þá eru skráðir eigendur Kristján Óskarsson o.fl.  TF-ZZZ og TF-EHA eru báðar geymdar á Flugsafninu á Akureyri og eru báðar með gilt lofthæfisskírteyni.


TF-ARC er ekki Erco Ercoupe heldur Alon A-2 Aircoupe.  Vélin er árgerð 1966 en var flutt hingað til lands 1988.  Eigendur af þessari vél hafa verið Erling Þ. Ólafsson en frá 1997 er Eigendafélagið TF-ARC skráður eigandi. 


Skrifað 7.2.2010 kl. 14:50 af admin

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu



clockhere

Tenglar