Könnun 26.11.2009

Í þættinum Reykjavík siðdegis á Bylgjunni þann 26. nóvember s.l. var enn ein könnunin um framtíð Reykjavíkurflugvallar en spurt var "Hvað viltu gera við flugvöllinn í Vatnsmýrinni í Reykjavík?" Útkoman var mjög afgerandi eða 74% vildu hafa hann en 26% vildu færa hann. Er ekki kominn tími til að borgarstjórn Reykjavíkur sem eru kjörnir fulltrúar íbúanna fari að hlusta á hinn almenna borgarbúa, taki af skarið og fastsetji völlinn í Vatnsmýrinni og byggja svo svæðið upp með það að leiðarljósi. Nú er verið að gera nýjan veg við hlíðarfót og er að mínu mati farið allt of nálægt flugvallarsvæðinu en einnig er það gert við nýja byggingu H.R. virðast skipulags yfirvöld gera þetta að ásettu ráði til að þrengja að flugvallarsvæðinu.
Valur St.