Flokkar:

Flugfréttir.is
Flugfréttir er fréttasíða um grasrót flugsins.


Fréttir

Flugfréttir

26.11.2009

Bókaútgáfa

Tveir grasrótarmenn eru í bókaútgáfu nú fyrir jólin.

Baldur Sveinsson
flugáhugamður og flugvéla ljósmyndari gefur út bókina Flugvélar 2009 og er þar að finna 120 blaðsíður með úrvali mynda sem teknar voru á árinu.  Aðal uppistaðan eru myndir af einstökum flugvélum á flugi teknar úr flugvél.  Einnig eru myndir frá flugsamkomum og komum erlendra flugvéla.  Í bókinni er einnig að finna myndir frá risaflugmóti módelmanna að Tungubökkum og í lokin er að finna myndir frá flugsýningunni Flying Legends í Duxford frá því í júlí í sumar.



Halldór Jónsson verkfræðingur og flugdellukall gefur út bókina Sagittarius Rísandi eftir Cecil Lewis sem Halldór þýddi sjálfur og gefur út undir fyrirtæki sínu Hallsteinn ehf. 

Um bókina: Cecil Arthur Lewis kveður móður sína og fer 17 ára unglingur í breska flugherinn.  Hann verður flugmaður í fyrri heimstyrjöldinni 1916.  Þrátt fyrir aðeins þriggja vikna meðal lífslíkur ungs bresks flugmanns á þessum tímum, kemst hann lífs af úr hildarleiknum fyrir ótrúlega heppni og hjálp góðra manna.  Í linnulausum orrustugnýnum tapar hann aldrei ást sinni á fluginu sjálfu né fegurð himinsins. 
Sagittarius Rísandi er fáanleg í Bókabúðinni Hamraborg, Bókaverslunum Eymundsson, Máli & Menningu og Bókakaffinu á Selfossi.  Einnig má hafa samband við útgefandann Halldór Jónsson í síma 892-1630 eða með tölvupósti halldorj@vortex.is

Skrifað 26.11.2009 kl. 12:27 af admin

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit
Til baka

Fara á upphafssíðu



clockhere

Tenglar