26.11.2009
Fluggarðar öryggismál
Eftirfarandi tilkynning er frá Don yfirmanni öryggismála Flugstoða.
Stóra hliðið á akbraut Golf hefur verið tekið niður og í staðinn er komið geislahlið.
Ástæða þessara breytinga er að bæta öryggi á flugvellinum. Þessari breytingu hefur verið fagnað hjá notendum hliðsins og þá sérstaklega flugmönnum. Geislahliðið stoppar ekki óviðkomandi umferð, það eina sem gerist er að sírena fer í gang og viðbragðsaðilar fara af stað.
Ég tel þ.a.l. sérstaka ástæðu til að brýna fyrir ykkur að virða reglurnar sem gilda um umgengni við aksturshliðið að Fluggörðum, í ljósi þess að nú hindrar ekkert óviðkomandi sem ekki þekkja til að fara inn á flugsvæðið.
Þegar ökutæki er ekið um aksturshlið (við Shell) skal ökumaður stöðva ökutækið þegar búið er að aka um hliðið og bíða þar til hliðið hefur lokast að fullu á eftir honum.
Þetta er til að koma í veg fyrir að óviðkomandi komist inn í Fluggarða í kjölfar þeirra sem ekki bíða eftir að hliðið lokist.
Þetta eru hagsmunir okkar allra að hafa þessa hluti í lagi.
Kærar þakkir.
Diedonné (Don) Gerritsen
Verkefnastjóri Flugverndarmála Flugstoða.