20.08.2011 21:51
Haldið var uppá 75 ára afmæli Svifflugfélags Íslands á sólríkum
degi. Þrátt fyrir svolítinn gust var talsvert fjölmenni. Minnisvarði til
heiðurs Agnari Kofoed-Hansen aðalhvatamanns að stofnun Svifflugfélagi Íslands
var afhjúpaður. Agnar Kofoed-Hansen var fyrsti formaður félagsins. Á
minnisvarðanum er lágmynd og m. a. ummæli A. K.-H. um að svifflug sé fegursta
íþrótt sem til er. Gullmerki voru afhent Þórmundi Sigurbjarnasyni, Sverri
Thorlákssyni og Þorgeiri Pálssyni. Verðlaun voru afhent fyrir besta árangurinn
á Íslandsmótinu, í fyrsta sæti var Steinþór Skúlason, í öðru sæti Kristján
Sveinbjörnsson og því þriðja var Daníel Stefánsson. Eftir kaffi flugu ýmsar
vélar þar sem menn sýndu listir sínar.
Magnús Norðdahl kom á Zlin-inu sínu og sýndi listflug, Benni
Thors kom á Þristinum og flaug listavel í hanginu. Þetta er án vafa fyrsta og
ef til vill eina sinn sem DC 3 flýgur hangflug í Vífilfelli. Þarna var
greinilega maður sem þekkti umhverfið vel. Síðar kom Benni Thors aftur og nú á
Pits vélinni og sýndi ýmsar kúnstir. Þannig sóttu margir félagið heim, akandi
og fljúgandi. Bæjarstjórinn í Kópavogi flaug með Krisjáni formanni og var í
skýjunum, þótt hún væri lent og hafði reyndar haft orð á því fyrr um daginn að
þetta væri eini flugvöllurinn í Kópavogi.
Nokkrar myndir frá deginum er að finna í albúminu okkar.
Hægt er að sjá video frá yfirflugi Þristsins hér
08.08.2011 00:42
MBL.IS greindi frá því í kvöld að lítil einkaflugvél hefði hlekkst á í lendingu á flugvellinum á Lambanesi í Fljótum í kvöld. Þrír voru í vélinni og hlutu þeir skrámur í óhappinu. Sjá nánar á vef mbl.is
hér.02.08.2011 23:47
Eiríkur Þór Eiríksson hefur selt Cessnu Skyhawk vél sýna TF-MAY til Frakklands, í dag lögðu þeir félagar Sigurður Ásgeirsson og Guðjón Jóhannesson af stað með vélina fyrsta legginn sem er til Hornafjarðar en í fyrramálið halda þeir áfram til Wick í Skotlandi en loka áningastaður er Swiss.
Flugfréttir óskar þeim félögum góðrar ferðar.
Hægt verður að fylgjast með ferð þeirra félaga á eftirfarandi vef:
(sjá hér)
http://share.findmespot.com/shared/faces/viewspots.jsp?glId=0rKH1esZZbyKkJmqEX0iblOQYYnY3NkEK
Eiríkur ásamt ferju flugmönnunum þeim Sigga og Guðjóni.
ferjutankur 180ltr.
04.07.2011 18:47

Margt verður í gangi um næstu helgi á Hellu en flugkoma FMÍ verður alla helgina á flugvallarsvæðinu en einnig verður Íslandsmótið í Svifflugi á Hellu og Suðurlandi 2.- 10. júlí. Mótsstjórn og framkvæmd Svifflgus- mótsins er á 122.6 en reynt verður að hafa hlustvörð á 118.1. Ef viðrar til svifflugs er flugtog frá Hellu ...frá 10-12 og síðan koma vélarnar til baka allt til kl. 17:00. Einnig má gera ráð fyrir einstaka flugtogi frá Hellu eftir kl. 12:00.
Flugvellinum er ekki lokað fyrir annari umferð meðan svifflug stendur yfir en flugmenn eru beðnir að hafa augu og eyru opin og virða leiðbeiningar mótsstjórnar og muna að svifflugur hafa forgang fyrir vélflugum (eins og menn lærðu í flugreglunum).
f.h. Svifflugdeildar FMÍ Orri Eiríksson
f.h. Vélflugdeildar FMÍ Valur Stefánsson
30.06.2011 00:01
Viljum minna á smáuglýsingarnar á síðunni okkar, þarna er hægt að finna allt frá GPS tækjum upp í heilar flugvélar.
03.06.2011 08:49
Silfurjódelinn, fyrri hluti 2. Júní 2011
1. Hafstseinn Jónasson TF-PAC 79 refsistig
2. Guðni Þorbjörnsson TF-ULV 92 refsistig
3. Haukur Arngrímsson TF-SKN 95 refsistig
4. Orri Eiríksson TF-SPA 112 refsistig
5. Hjörtur Þór Hauksson TF-FIM 180 refsistig
6. Birgir Steinar Birgisson TF-FUN 204 refsistig
7. Atli Þorvaldsson TF-RVA 214 refsistig
8. Þorsteinn Jónsson TF-KAJ 226 refsistig
9. Kári Kárason TF-KAJ 233 refsistig
10. Sigurður Georgsson TF-RVM 265 refsistig
11. Jón Sverrir Jónsson TF-SPA 280 refsistig
12. Jón Karl Snorrason TF-REX 471 refsistig
13. Birgir TF-135 472 refsistig
14. Garðar Sigvaldason TF-FAL 512 refsistig
31.05.2011 18:47
Á fimmtudaginnn 02. júní verður fyrri hluti Silfur Jódels lendingakeppninnar á Tungubakka flugvelli í Mosfellsbæ. Mæting er kl. 19:00 og eru þeir sem geta hvattir til að mæta flögrandi.
Á laugardaginn 04. júní verður 30 ára afmælishátíð Flugklúbbs Mosfellsbæjar.
Dagskrá:
- 12:00-15:00 Útsýnisflug fyrir Mosfellinga (eins og sætafjöldi leyfir).
- 15:00-17:00 Flughátíð
Fjölbreytt dagskrá sem endar með karamellukasti fyrir börnin - 19:00 Fly-In grillveisla fram eftir kvöldi
Skráning matargesta hjá Ómari Bjarnasyni í síma 863-2129 eða á omar@talnet.is Verð kr. 3.500 fyrir grillmat -
Skráningu lýkur fimmtudaginn 2. júní
Allir velkomnir og menn hvattir til að koma fljúgandi
www.fkm.is
26.05.2011 20:24
Þeir félagar Guðjón Jóhannesson og Sigurður Ásgeirsson hafa útbúið smá video af ferð sinni á TF-RVA til Evrópu árið 2009. Hægt er að horfa á videóið með því að klikka á slóðina hér að neðan.
http://www.youtube.com/watch?v=fBLDxCIVmVw&feature=share
23.05.2011 18:21
Fyrirhuguðum Flugdegi sem fram átti að fara n.k. laugardag hefur verið frestað vegna eldgossins í Vatnajökli.
22.05.2011 21:31
Vakin er sérstök athygli á eftirfarandi NOTAM:
C-NOTAM nr. 0050/11 Flúðir BIFL lokað.
NOTAM nr. C 0050/11
A) Staður: Flúðir BIFL.
B) Gildir frá: 16. maí 2011 kl. 14:00
C) Gildir til: 16. ágúst 2011 kl. 14:00
D)
E) Flugvöllurinn lokaður vegna framkvæmda.