06.09.2009 23:43
Seinni hluti Silfur Jodelsins var haldinn s.l. laugardag
Keppni var æsi spennandi og voru heildar úrslit eftirfarandi.
1. Sigurjón Valsson TF-UFO
2. Ómar Bjarnason TF-POU
3. Maggnús Vikingur TF-REF
4. Frosti Heimisson TF-134
heildar listann er að finna á heimasíðu FKM
www.fkm.is Myndir frá laugardeginum er að finna í myndaalbúminu hér á Flugfréttum.

Ágúst Jóel Magnússon keppti á TF-DAB en hún er ný komin úr smá yfirhalningu frá KAK hópnum sem í byrjun var settur saman til að gera upp TF-KAK en nú eiga þeir einnig þennan Piper Clipper.
03.09.2009 13:01
Í gær miðvikudaginn 02. september nauðlennti TF-BEZ við Vesturlandsveg. Vélin er að Beechcraft Skipper gerð og er í eigu Flugklúbbsins Lágflugs.
"Ég var ótrúlega róleg" grein og viðtal við flugmanninn af mbl.is má lesa hér.

TF-BEZ á slysstað. Ljósm: Árni Sæberg www.mbl.is
03.09.2009 12:48
Í dag 3. september eru 90 ár liðin frá því flugvél var fyrst flogið í Vatnsmýrinni.
Var það flugmaðurinn Faber sem flaug Avro 504 flugvél sinni síðdegis þann dag. Í Morgunblaðinu daginn eftir er sagt frá þessum viðburði. Þar kemur fram að um klukkan 5 hafi gerst óvæntur atburður suður á Flugvelli. Reynsluflugið var ákveðið þá strax og án þess að nokkur vissi ók Faber vélinni út á völl, settist við stýrið og rendi á stað. Vélin rann nokkra tugi faðma niður eftir túninu, eins og álft sem flýgur upp af vatni, og síðan losnaði hún frá jörðu og smá hækkaði. Hljóðið frá mótornum heyrðist inn í bæinn og menn fóra að skima í kringum sig. Og allir sem skimuðu ráku augun í það sama: vélin leið áfram um loftið eins og risavaxinn fugl, stöðugri en nokkur vagn á rennsléttum vegi, sneri sér krappar beygjur og tylti sér eftir dálitla stund aftur á grassvörðinn," segir í Morgunblaðinu 4. sept. 1919.
MBL greindi frá í dag 03.09.09

Avro 504 eins og sú er tók sig til lofts í Vatnsmýrinni 3.09.1919 ljósm frá mbl.is
02.09.2009 12:55
Á laugardaginn gerðist það óhapp að flugvél var ekið á kyrrstæðan bíl á rampinum við Skýli 1, var bíllinn mannlaus en viðkomandi ökumaður hafði tilskilin leyfi til að vera á honum innan flugvallarsvæðisins. Flugmaður vélarinnar listflugsvélarinnar sá hins vegar ekki bílinn er hann kom inn á stæðið en útsýni úr tvíþekjunni takmarkað í akstri og sjaldan þurfa flugmenn að búast við umferð ökutækja á flugstæðum.
Þetta vekur til umhugsunar hvort ekki þurfi að takmarka enn frekar umferð ökutækja á flugstæðum við völlinn.
01.09.2009 20:28
Sjónvarpsstöðin ÍNN er með í sýningu þætti um áfangastaði Flugfélags Íslands. Þættirnir eru skemmtilegir fyrir áhugamenn um flug því í byrjun hvers þáttar er sýnt frá aðfluginu á hvern stað úr flugstjórnarklefanum og á jörðu niðri. Í kvöld miðvikudag kl:21 verður sýndur þáttur um heimsókn til Ísafjarðar. Það eru félagarnir og flugmennirnir Árni Arnason og Snorri Bjarnvin Jónsson sem framleiða þættina.
Fyrri þátturinn um Ísafjörð verður sýndur í kvöld miðvikudag og seinni þátturinn eftir viku.
Sjónvarpsstöðin ÍNN næst með Digital Ísland eða Breiðbandi.
Þættirnir eru einnig á
inntv.is hér:
http://www.inntv.is/Horfaáþætti/ReykjavíkAEYÍFJVEYEGSReykjavík/tabid/986/Default.aspx