20.08.2009 13:59
Næstkomandi mánudag eða þann 24. ágúst verður breyting á þjónustustigi flugumferðarþjónustu á Vestmannaeyjaflugvelli.
Undanfarin ár hefur verið blandað þjónustustig á Vestmannaeyjaflugvelli þar sem flugumferðarstjórn eða flugupplýsingaþjónusta (flugradíó) hefur verið notuð, og hefur það farið eftir tíma sólarhrings.
Frá og með 24. ágúst 2009 verður flugupplýsingaþjónusta allan sólarhringinn. Kynning á breytingunum er hægt að sjá
hér.
17.08.2009 11:11
Ein af þeim flugvélum sem hefur verið hvað lengst með aðsetur á Selfossflugvelli fékk nýja eigendur þann 29. júlí s.l. Hér er verið að tala um TF-EOS sem er af gerðinni Piper PA-28-151 Cherokee Warrior. Nýjir eigendur eru frá Vestmannaeyjum og heita Guðmundur Alfreðsson (átti áður TF-NES) og Arnar Richards.
Sjá nánar á vef Flugklúbbs Selfoss
hér.

TF-EOS á Tungubakka flugvelli
Ljósm: Steinar Viktorsson06.08.2009 23:55
Flugkoma Félags Íslenskra Einkaflugmanna fór fram um Verslunarmannahelgina að vanda. Mæting var með betra móti og veðrið lék við gesti. Þristurinn mætti á svæðið en það var Olís sem greiddi fyrir þennan gamla grip sem hreinlega er ómissandi á þessu móti. TM Lendingakeppnin fór fram á laugardeginum og var það Hjörtur á TF-FIM sem bar sigur þetta árið í öðru sæti var Capt. Einar Dagbjartsson á TF-KAF og í þriðja sæti var Frosti Heimisson á TF-134 en alls tóku 22 flugmenn þátt þetta árið og er það met. Margt var til gamans fyrir krakkana og var m.a. hveitipokakast úr flugvél, pokahlaup, pílukast og svo var hoppukastali á staðnum sem var í stanslausri notkun. Á laugardagskvöldinu var varðeldur og spiluðu Dagbjartur og Sesselja við eldinn við góðar undirtektir móts gesta.
Flugkoman gekk í alla staði mjög vel fyrir sig og voru flygildi að öllum stærðum og gerðum en talið er að rétt tæplega 50 vélar hafi mætt á svæðið. Gaman var að sjá nýja og glæsilega salernisaðstöðu sem þeir Múlakotsmenn eru með í byggingu en hluti hennar var tekinn í notkun fyrir þessa helgi. Miklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Múlakoti undanfarin ár og hafa risið á annan tug sumar/heilsárshúsa auk glæsilegs flugskýlis er ekki hægt að segja annað en að Múlakot sé hrein "flug paradís" en þetta byrjaði allt með flugbakteríu Árna heitins Guðmundssonar flugmanns og bónda frá Múlakot.
Myndir af flugkomunni er að finna hér í myndaalbúmi Flugfrétta en að auki er fjöldi mynda á www.flugklubbur.is og einnig má finna myndir á heimasíðu Baldurs Sveinssonar www.verslo.is/baldur

Þessi mynd er tekin á sunnudeginum en þá þegar höfðu þó nokkrir gestir farið heim á leið.
06.08.2009 13:25
Flugvélin TF-DIS er til sölu
Vélin er að gerðinni Piper Cherokee Warrior PA-28 árgerð 1974
TBO á mótor er ca 1000 klst. og ársskoðun út september 2009.
Áhugasamir hafi samband við Björn Jensson í síma 892-3055

Ljósm: Baldur Sveinsson