23.07.2009 20:44
Múlakot 2009
Flugkoma FÍE í Múlakoti verður um verslunarmannahelgina eins og undanfarin ár.

19.07.2009 11:09
Flugið 2009 kemur út
Nú er flugblaðið Flugið 2009 í prentun, áætlað er að því verði dreift til áskrifenda um miðjan júlí. Allir áskrifendur fá blaðið sent auk þess sem það verður selt í öllum helstu bókaverslunum landsins
Meðal efnis í blaðinu verður:
- Viðtöl
- Atvinnuflug
- Einkaflug
- Listflug
- Flugsmíðar
- Svifflug
- Flugnám
- Flugumferðarstjórn
- Flugvirkjun
- Og margt fleira
www.flugid.is

14.07.2009 10:14
Allt sem getur flogið á Blönduósflugvelli helgina 17. - 19. júlí.
Allir flugáhugamenn eru hvattir til að mæta á Blönduós. Flogið verður til Grímseyjar á laugardeginum ef veður leyfir. Pitts Special kemur frá Akureyri og sýnir listflug. Farið verður í hópflug að Blöndulóni með Þristinum á sunnudeginum og lent á vellinum þar.
Tjaldað verður við flugstöðina á Blönduósi og verður aðgangur að salernum fyrir hendi auk þess verður hægt að tengjast rafmagni fyrir tjaldvagna, fellihýsi, hjólhýsi og ferðabíla.
Tjaldstæðið er frítt.

Auglýsingu á pdf formati er hægt að skoða
hér.
06.07.2009 21:42
Inn í tenglasafnið hér hægra megin eru nú komnar inn vefmyndavélar í Vestmannaeyjum og Bakkafjöru, einnig hefur verið fjölgað vélum í Múlakoti.
03.07.2009 00:37

Einn maður lést í flugslysi á Vopnafirði í kvöld þegar Cessna flugvél hrapaði við veiðihúsið í Selá. Tveir menn voru í vélinni og var hinn maðurinn fluttur mikið slasaður með sjúkraflugi á spítala í Reykjavík.
01.07.2009 14:12
TF-SIF Dash-8 Q300
Er væntanleg í dag, miðvikudaginn 1. júlí kl. 15:00 á afmælidegi Landhelgisgæslunnar.
TF-SIF var formlega afhent LHG hjá Field Aviation í Kanada s.l. föstudag. Nánari upplýsingar um vélina má finna á heimasíðu LHG
hér og
hér.

Ljósm: www.lhg.is