30.06.2009 10:41
Hætt hefur verið við óvissuferð FÍE n.k. laugardag vegna þessa hræðilega flugslyss sem varð í kvöld á Vopnafirði.
Félag Íslenskra Einkaflugmanna stendur fyrir óvissuferð laugardaginn 4. júlí n.k.
Áætlun er að mæta á Tungubakkaflugvelli kl. 09:00 og fara í loftið kl. 10:00. Flugmenn eru vinsamlegast beðnir um að vera búnir að tanka. Þar sem um óvissuferð verður að ræða þá veit enginn hvert verður farið nema foringinn sjálfur Otto Tynes. Munið bylgjulengd á Tungubökkum 118,2MHz.
f.h. Óvissunefndar
Otto Tynes 554-4266 / 893-8198
22.06.2009 12:45
Íslandsmeistaramótið í listflugi
var haldið á flughelginni á Akureyri um liðna helgi, keppni var hörð sem endra nær en sigurvegari var Ingólfur Jónsson en hann keppti á TF-ABJ.

Ingó með bikarinn góða (ljósm Guðni).
Fleiri myndir af helginni er að finna í myndasafninu hér á síðunni en þær tók Guðlaugur Agnar.
18.06.2009 15:29
Lokun Kaldármelaflugvallar frá 05. júní hefur verið aflétt.
Nú er búið að opna Kaldármela aftur sbr.
NOTAM skeyti frá 16. júní. Einnig styttist í að völlurinn á Sprengisandi verði opnaður en hann verður valtaður fljótlega og verður þá gefið út NOTAM þess efnis. Forsvarsmenn Flugmálafélagsins þrýstu mikið á Flugstoði að loka ekki þeim völlum sem tilkynnt var um í vor en þar voru einnig vellirnir á Dagverðará og Krókstaðarmelum.
C-NOTAM nr. 0095/09 Kaldármelar BIKA
NOTAM nr. C 0095/09
A) Staður: Kaldármelar BIKA
B) Gildir frá: 16. júní 2009 kl. 16:55
C) Gildir til: 15. ágúst 2009 kl. 23:59
D)
E) Lokun flugbrautarinnar skv. AIP AMDT, AD 4 05 JUN 2009 hefur verið aflétt. Flugbrautin völtuð og í góðu ásigkomulagi.
Sjá AIP ad 4. 16.06.2009 14:34
Flughelgin á Akureyri 20. - 21. júní
Dagskrá laugardagsins 21. júní er eftirfarandi:
10:00 - 12:00: Íslandsmeistaramót í listflugi
12:00 - 13:00: Opnun sérsýninga / Kraftakeppni draga flugvél
------------------------------------------------------------------------------------
13:00 - 13:15 Mótorsviffluga og listflug á svifflugu
13:15 -13:30 Listflug TF-TOP - Khalide Makagonova
13:30 - 13:45 Fallhlífastökk
13:45 - 14:00 Þyrla Landhelgisgæslunnar
14:00 - 14:15 Spyrna: Bíll vs. Flugvél
14:15 - 14:30 Þristurinn og King Air fljúga
14:30 - 14:40 Yak 55 - Magnús Norðdahl
14:40 - 14:50 Super Cub sýnir listir sínar
14:50 - 15:00 Bóndi úr Svarfaðardal fer í kynnisflug
15:00 - 15:15 TF-CCB - Khalide Makagonova
15:15 - 15:35 Hópflug gamalla flugvéla
15:35 - 15:45 Magnús Norðdahl flýgur listflug á Zlin
15:45 - 16:00 Yak hópflug
16:00 - 16:15 Fallhlífastökk
www.flugsafn.is
16.06.2009 14:21
Verkefni í Mosó
Steingrímur Friðriksson flugstjóri hjá FÍ er að smíða Pitts Special S1 og á sama stað er Hafsteinn að smíða One Team vél og sjást myndir af þeim hér fyrir neðan.

Steini við Pitts verkefni sitt.

Hafsteinn við One Team verkefnið.
08.06.2009 09:07
Flugdagur á Flúðum
Laugardaginn 13. júní ætla flugmennirnir og Flúðabændurnir Maggnús Vikingur og Georg Ottósson að standa fyrir flugdegi á Flúðum. Er þetta í þriðja skiptið sem þeir félagar standa fyrir slíkri uppákomu.
Hér kemur smá tilkynning frá þeim Maggnúsi og Georg.
Von okkar er að fá sem flesta flugmenn og flugvélar á svæðið til okkar enda þurfum við að berjast fyrir tilverurétti flugvallarins á Flúðum. Dagskráin hefst klukkan 14:00 með mætingu flugmanna og gesta. Þeir sem vilja bjóða gestum í útsýnisflug eru hjartanlega velkomnir í það. Þyrla verður á staðnum sem og grillaðar pylsur og gos. Ef aðstæður leyfa verður haldin lendingarkeppni. ATH. hægt er að fá flugvélabensín á staðnum.
Flugkveðja,
Maggnús Vikingur Grímsson
Georg Ottósson.
08.06.2009 09:03
Silfur Jódelinn
Fyrri hluti Silfur Jódelsins var haldinn á Tungubökkum s.l. fimmtudag 04. júní og var vel mætt. Sigurvegari var Maggnús Vikingur á TF-REF með 82 refsistig í 2. sæti var Jón Sverri Jónsson á TF-SPA með 102 stig og í þriðja var Þorsteinn Magnússon á TF-NES með 108 stig.

Þorsteinn Magnússon á TF-NES og eins og sjá má þá fylgdust áhorfendur vel með hvar þeir lenntu.
ljósm. www.fkm.is
04.06.2009 08:41
Aðalfundur FÍE
Var haldinn í gærkvöldi og eru tvær breytingar á stjórn félagsins en hana skipa í dag.
Valur Stefánsson formaður
Sigurleifur Kristjánsson
Jóhann Þ. Gunnarsson
Valdimar Einarsson
Guðmundur K. Unnsteinsson
Hörður Sverrisson
Otto Tynes
Sigurður Georgsson.
04.06.2009 08:40
Fyrri hluti Silfurjódelsins
Verður haldinn á Tungubökkum í kvöld, mæting fyrir kl. 19:00
www.fkm.is
03.06.2009 09:57
Félag Íslenskra Einkaflugmanna heldur aðalfund sinn í félagsheimili FÍE í Fluggörðum í kvöld kl. 20:00. hvetjum alla einkaflugmenn til að mæta og taka þátt í félaginu.