28.05.2009 14:31
TF-VKA
Kristján Árnason f.v. flugstjóri og verkfræðingur hannaði og smíðaði sjálfur þessa tveggja hreyfla vél sem er kölluð Global 3. Það tók Kristján fjögur ár að smíða vélina en áður hefur hann smíðað tvær aðrar vélar en jómfrúar flugið á TF-VKA fór hann í júní mánuði í fyrra.

TF-VKA í Fluggörðum.
24.05.2009 21:56
Fundarboð
Aðalfundur Félags Íslenskra Einkaflugmanna verður haldinn í félagsheimili FÍE miðvikudaginn 03. júní kl. 20:00. Dagskrá fundarins verður samkv. lögum félagsins.

- Kosning fundarstjóra
- Kosning fundarritara
- Skýrsla stjórnar
- Reikningar félagsins lagðir fram
- Lagabreytingar
- Kosning stjórnar og varastjórnar
- Kosning endurskoðenda / skoðunarmanna
- Ákvörðun árgjalds
- Önnur mál
- Fundi slitið
Kaffi og meðlæti.
Stjórn FÍE.
aopa@aopa.is
www.aopa.is
22.05.2009 15:56
Flugvél út í skurð á Flúðum.
Lögreglan á Selfossi var í dag kölluð út vegna flugóhapps á flugvellinum á Flúðum. Lítil einkaflugvél lenti út í skurð skammt frá flugvellinum en engin slys urðu á fólki að sögn varðstjóra Lögreglunnar á Selfossi. MBL.is greindi frá.
Í fréttum RÚV í kvöld var greint frekar frá óhappinu á flúðum en þá kom í ljós þrátt fyrir að fréttamenn segðu að um tveggja hreyfla vél væri að ræða þá var þetta TF-MOS sem er eins hreyfills Cessna 170 frá Flugklúbbi Mosfellsbæjar.

TF-MOS á slysstað (ljósm. www.ruv.is)
22.05.2009 09:10
Sigurður Ásgeirsson flugstjóri er með öðrum einstaklingi í Evrópu reisu á TF-RVA, lögðu þeir af stað frá Reykjavík 19. maí og eru komnir niður til Frakklands. Hægt er að fylgjast með ferð þeirra á þessari vefslóð
hér
.
TF-RVA á Flugsýningunni 2008.
22.05.2009 08:30
Því miður verður engin flugsýning á Reykjavíkurflugvelli í ár þar sem Flugstoðir höfnuðu tillögu Flugmálafélagsins um slíka hátíð. Eru þetta mikil vonbrigði fyrir flugið og borgarbúa alla þar sem sýningin í fyrra heppnaðist mjög vel og með topp aðsókn. Vonumst til þess að Flugstoðir taki betur í beiðni FMÍ á næsta ári.

Frá Flugsýningunni 2008
12.05.2009 21:43
Flugdaskrá sumarsins
Undir flipanum "Dagskrá" hér að ofan er dagskrá flugsumarsins 2009. Ekki er komin dagsetning á Flugsýningu FMÍ á Reykjavíkurflugvelli. Í undirbúningi er flughelgi á Blönduósi 17. - 19. júlí en þá helgi er einnig Húnavaka á Blönduósi og mikið um að vera.

Ljósm: GAV.