30.04.2009 10:53
Fjórar Super Cub vélar í smíðum
Í fyrra komu fjögur Super Cub project til landsins og er Þorsteinn Kristleifsson flugstjóri með eitt þeirra í smíðum í Fluggörðum og er kallinn greinilega með hálfa búsetu í skýlinu en hann sagði okkur að nú færi að styttast í klæðninguna á skrokknum og verður þá mikil breyting á. Vélin verður með 180hp mótor þannig að þetta verður þokkalega öflugt leikfang.

Steini upptekinn að vanda bæði með kaffibollann og í símanum.
Flughópurinn KAKan
Otto Tynes fer fyrir fríðum hópi sem keypti TF-KAK og eru þeir félagar á fullu í endursmíð á þeirri vél en af því að þeir hafa svo gaman af þessu þá keypti hópurinn TF-DAB Piper Clipper sem Árni heitinn Guðmundsson í Múlakoti átti síðast og er planið að hún fljúgi um miðjan maí.

DABbinn í skveringu.
Fleiri myndir eru í myndaalbúminu af þessum verkefnum og einnig af TF-ULV sem Guðni Þorbjörnsson og félagar eru að skvera en liturinn er hættulegur og ætti enginn að missa sjónar af þeim í sumar.
29.04.2009 12:43
Tíu ára afmæli Flugsafns Íslands.
Á föstudaginn 01. maí verða 10 ár frá stofnun Flugsafns Íslands á Akureyri en í byrjun hét það reyndar Flugsafnið á Akureyri en því var breytt fyrir nokkrum árum. Safnið var formlega opnað 24. júní 2000 þegar haldin var fyrsta sinni svokölluð flughelgi safnsins sem hefur verið árlegur viðburður. Safnið er opið alla daga vikunnar yfir sumarið en í tilefni tímamótanna verður opið á afmælisdaginn 1. maí kl. 13 - 17 og á laugardaginn 10 - 17.
www.flugsafn.is
29.04.2009 08:54
Mörg verkefni eru í gangi út um allan bæ og skiptir ekki máli hvort um sé að ræða nýsmíði flugvéla, endurbyggingar eða lagfæringar og smá "uppfærslur". Á næstunni ætlum við að greina frá nokkrum verkefnum sem eru í gangi og viljum jafnframt biðja þá sem eru með verkefni í gangi að senda okkur línu á netfangið valur@islandia.is svo við getum fjallað um þau hér á Flugfréttum.
Glasair III
Ingólfur Jónsson flugmaður hjá Icelandair og Íslandsmeistari í listflugi er í samvinnu við frænda sinn Magnús Jónsson að smíða Glasair III en vélin er smíðuð úr "Composites" eða trefjaefnum, lang mest af allri trefjavinnunnni er lokið frá verksmiðjunni en þó þarf að ganga frá stéli og vængjum og loka þeim, setja control system á vængi og skrokk, ganga frá eldsneytiskerfi, hydraulic-kerfi fyrir uppdraganleg hjól, ganga frá mælaborði og innréttingu, setja mótorinn á sinn stað og auðvitað að mála vélina.
Ingó segir að þetta snúist meira um samsetningu en eiginlega smíði. Við gefum hér Ingó orðið að lýsa verkefninu fyrir okkur: Gera má ráð fyrir að það taki í kringum tvö þúsund vinnustundir að klára verkefnið, samt er mjög erfitt að áætla smíðatímann og er hann mjög breytilegur á milli manna, margir missa sig í smáatriðunum og þá bætist að sjálfsögðu við tímann en eins og sagt er í leiðbeiningunum þá skiptir mestu máli að hafa gaman af þessu og flýta sér ekki um of því þá er algengt að menn missi móðinn og gefist upp. Eins og sést hér að neðan þá er vélin með mjög mikið hraðasvið og er ofrishraðinn ekki það hár þrátt fyrir tiltölulega háa vænghleðslu en við ættum að geta lent á all flestum flugvöllum landsins, ég veit af einum í Sviss sem geymir vélina sína á velli sem er 500 mtr. Flugtíminn á svona vél milli Reykjavíkur og Akureyrar er um 36 mín. m.v. logn og ekki skemmir fyrir að hún er líka fín í listflug.
Þeir frændur áætla að fljúga vélinni eftir 4 ár ef allt gengur eftir.
Glasair III specs:
Lengd: 21,3 ft.
Vænghaf 23,3 ft.
Max hæð: 7,5 ft
Breidd á stjórnklefa: 107cm. / 42"
Eldsneyti: 84 usg / 317 ltr.
Tómaþungi ca: 1625 lbs.
Hámarks flugtaksþungi: 2500 lbs.
G-limits: +6 / -4G
Farflugshraði: ca 242 ktas í 8000 fetum á 75% afli, 230 ktas í 8000 fetum á 65% afli.
Max level speed sea level 260 ktrs.
Ofrishraði: 65 kts á mánarks þunga með fulla flapsa, 75 kts án flapsa.
Flugdrægi: 1265 sjómílur með VFR reserves (2340km)
Vænghleðsla: 29,5 lbs/sq ft.
Klifurgeta: 3000 ft. pr. mín með einn um borð / 2140 ft. m.v. max þyngd.
Motor: Lycoming IO-540 300hp eð Lycoming IO-580 320 hp. (ofangreindar upplýsingar m.v. IO-540).

Glasair III fleiri myndir er hægt að sjá í myndaalbúmi.
Hér fyrir neðan má finna tvö video þar sem Glasair III kemur við sögu.
Pilot Report: Budd Davisson. grein
Bob Herendeen sýnir hvað vélin getur á flugsýningu. video
Glasair III nýlegt video. video
Flugfréttir þakkar Ingó kærlega fyrir upplýsingarnar um verkefni þeirra félaga.
27.04.2009 10:25
Flugvideo
Er nýr tengill hér á Flugfréttum og er þar hægt að skoða nokkur góð video clips frá tveimur aðilum.
Hér er t.d. hægt að sjá gamalt Mulakots video.
27.04.2009 10:17
Viðburðir sumarsins
Nú eru komnar dagsetningar á helstu viðburði sumarsins eins og sjá má hér að neðan, því miður vantar nokkrar dagsetningar en við uppfærum listann um leið og dagsetningar berast okkur.
Maí
23.05 Flugsýning FMÍ Reykjavíkurflugvelli
Júní
04.06 Silfurjódelinn fyrri hluti Tungubakkavöllur mæting kl. 19
13.06 Flugdagur á Flúðum
20.-21. Flughelgin Akureyri
Júlí
11.-12. Flugkoma FMÍ Hellu
25.07 Flugmót Þyts Haukadalsmelar (lendingarkeppni)
25.07 Flug með krabbameinsveik börn Múlakot
31.-03.08 Flugkoma FÍE Múlakoti
Ágúst
September
05.09 Silfurjódelinn seinni hluti Tungubakkavöllur mæting kl. 13
00.09 Pétursbikarinn lend.keppni Selfossi
05.09 Íslandsmeistarmót í Vélflugi Selfossi
Ef þið lesendur góðir vitið um fleiri viðburði sem þið viljið sjá hér þá endilega sendið okkur línu á netfangið valur@islandia.is
16.04.2009 16:11
Búið er að bæta við nokkrum nýjum tenglum hér til hliðar, má þar m.a. nefna AIP handbókina, NOTAM skeyti, AOPA, GA magasine sem hægt er að lesa á netinu og Þyrlufélagið.
15.04.2009 13:28
Skýjum ofar á ÍNN
Undanfarin mánudagskvöld hafa verið sýndir á Sjónvarpsstöðinni ÍNN flugþættirnir "Skýjum ofar" sem þeir félagar Snorri B. Jónsson og Dagbjartur Einarsson hafa gert. Í dag stendur til að mynda síðasta þáttinn í röðinni og verður m.a. myndað kappflug Cirrus vs Monster Pitts. Búið er að sýna fimm þætti og er hægt að skoða þá á heimasíðu ÍNN
hér.
14.04.2009 16:00
Fisfélag Reykjavíkur hefur opnað nýja heimasíðu.
Slóðin á nýju heimasíðuna er
www.fisflug.is og er hún mjög glæsileg og full af fróðleik. Við hvetjum allt flugáhugafólk til að kíkja á síðuna.
14.04.2009 15:51
Nýtt deiliskipulag fyrir flugvallarsvæðið á Selfossi.
Sveitafélagið Árborg hefur nú auglýst gildistöku á nýju deiliskipulagi fyrir flugvallarsvæðið. Svæðið fyirr flugskýli og flugstöð er samtals tæpir 5 hektarar og gert er ráð fyrir 6 nýjum byggingarreitum á svæðinu sem hver um sig getur rúmað allt að 6 skýli, eftir því hvað menn vilja byggja stórt. Samkvæmt skipulaginu verður flugstöðin á sínum stað en akbrautir og flugplan færist til.
Samkvæmt teikningu er gert ráð fyrir flugskýlum fyrir yfir 20 vélar umfram það sem þegar hefur verið byggt og því má ætla að flugklúbburinn muni styrkjast næstu misserin ef marka má framtíðarplön Flóamanna á flugsviðinu.

www.fisflug.is
07.04.2009 08:32
Ný flugvél Landhelgisgæslunnar TF-SIF er væntanleg til landsins 9. júlí og er það nokkuð á undan áætlun. Vélin er af gerðinni Dash 8 Q300. TF-SIF kemur í stað núverandi vélar TF-SYN Fokker F-27 sem er orðin 33. ára gömul. Vonumst við flugáhugamenn og þeir sem áhuga hafa á flugsögu okkar Íslendinga að Dómsmálaráðuneytið gefi Flugsafninu á Akureyri Fokker vélina þegar hin nýja kemur, við megum alls ekki missa síðustu F-27 vélina úr landi en fjölmargar svona vélar voru í innanlandsflugi okkar til fjölda ára.

TF-SIF Dash 8 Q300