24.03.2009 00:15
Fasteignasalan Valhöll auglýsir nú til sölu tvö flugskýli í Fluggörðum, annars vegar er um að ræða 76,5 m2 skýli og hins vegar 90 m2 skýli. Bárður Tryggvason sölumaður á Valhöll svarar öllum spurningum varðandi þessi skýli í 8965221.
Undanfarna mánuði hafa margir kvartað undan skýlis leysi en nú er um að gera að festa sér gott skýli fyrir flugtengda starfsemi.
Upplýsingar af fasteignavef MBL.IS er hægt að nálgast hér.
20.03.2009 10:13
Nokkrir félagar úr Flugklúbbi Mosfellsbæjar skruppu á vélunum TF-ULF, TF-MBJ og TF-KLM á ís lendingar á Langavatni, Guðni Þorbjörnsson tók skemmtilegar myndir í þessari ferð sem má nálgast hér.

TF-MBJ í lendingu á Langavatni. Ljósm. Guðni
16.03.2009 10:04
Í kvöld kl. 22:00 verður annar þátturinn af Skýjum ofar sýndur á sjónvarpsstöðinni Inn. Í fyrsta þættinum var m.a. sýnt frá hópflugi á Flúðir, Dagbjartur heimsótti Björn Thoroddsen í skýlið til hans og skoðaði vél hans TF-BLU og einnig aðra sem hann er með í smíðum og endaði á því að fara í listflug með Benna.
Þáttinn er hægt að sjá á heimasíðu INN
hér.
08.03.2009 12:57
Skýjum ofar er nýr þáttur um flug sem sýndir verða á sjónvarpsstöðinni ÍNN. Fyrsti þátturinn verður sýndur mánudaginn 9. mars kl. 22:00. Þættirnir eru gerðir af þeim Snorra B. Jónssyni og Dagbjarti Einarssyni.
Hægt er að sjá auglýsingu af fyrsta þætti
hér.
02.03.2009 18:33
Fyrsta febrúar s.l. lækkaði verð á 100 LL flugvélaeldsneyti. Eftirfarandi verð eru í gildi hjá Skeljungi:
| |
Avgas |
Avgas |
|
Jet |
Jet |
| |
usc/usg |
íkr/ltr |
|
usc/usg |
íkr/ltr |
| Reykjavík(Rey) |
515 |
155,289 |
|
430 |
129,659 |
| Ísafjörður(Ísf) |
550 |
165,843 |
|
500 |
150,766 |
| Akureyri(Aey) |
535 |
161,320 |
|
470 |
141,720 |
| Egilstaðir(Egs) |
550 |
165,843 |
|
500 |
150,766 |
| Höfn(Hfn) |
550 |
165,843 |
|
500 |
150,766 |
| Keflavík(Kef) |
515 |
155,289 |
|
430 |
129,659 |
02.03.2009 10:41
Eins og margir hafa tekið eftir þá er loftfararskráin farin út af vefnum
www.cl44.com en nú hafa þeir Ingólfur H. Tryggvason, Ólafur Jóhann Sigurðsson sem hafa verið með síðuna
www.flugheimur.is fengið ljósmyndarann Baldur Sveinsson í lið með sér að uppfæra loftfararskránna á heimasíðu Flugheimsm. Meðal nýjunga er fjöldi tenginga við
www.timarit.is vegna frétta dagblaða af flugslysum og öðrum atburðum tengdri viðkomandi flugvél. Reikna má með að þessi endurnýjun taki nokkra mánuði.
Þetta er frábært framtak hjá Ingólfi og félögum.
02.03.2009 08:57
Samkvæmt þjónustusamningi milli Flugstoða ohf. og Samgönguráðuneytisins fyrir árið 2009, sem kveður á um hvaða þjónustua skuli veitt á flugvöllum landsins og hvað fyrir hana greitt, er gert ráð fyrir miklu aðhaldi og sparnaði í rekstri. Auk þess er gert ráð fyrir lækknu á þjónustustigi ýmissa þátta í flugvallarkerfi landsins til að ná settu marki um lækkun kostnaðar. Ástæðan er sú að framlag ríkisins til framkvæmda og rekstrar flugvalla landsins og flugleiðsöguþjónustu þeim tengdum hefur verið skorið mikið niður. Þess hefur þó verið gætt að skerðing á þjónustu verði í lágmarki og áhersla lögð á kjarnastarfsemina þ.e.a áætlunarflug og sjúkra- og neyðarflug. Stefnan er að þessar sparnaðaráætlanir skili um 60 milljónum lægri kostnaði á yfirstandandi ári.
Tilkynningu Flugstoða er hægt að sjá í heild sinni
Flugstoðir