28.01.2009 09:00
Spennandi tækifæri til að eignast flugvél og skýli.
Til sölu 4. sæta Piper PA-28-140 Cherokee árgerð 1964.
IFR, total 3000 klst. og 600 klst. á mótor. Vélin er í topp viðhaldi, sami eigandi í 25 ár og ávallt geymd í upphituðu skýli.
Skýlið er á góðum stað í Fluggörðum 76,5 fm. upphitað með rafmagni.
Verð aðeins 11,9 milljónir fyrir vél og flugskýli.
Áhugasamir sendið fyrirspurn á á netfangið flugskyli@gmail.com
Vinsamlegast skiljið eftir nafn og símanúmer.
16.01.2009 08:36
Út eru komnar skýrslur frá Rannsóknanefnd Flugslysa vegna flugslysa TF-BOY og TF-FMS.
TF-BOY, flugslys við Þingvallaveg 02.04.2006 er hægt að nálgast
hér.
TF-FMS, flugslys á Reykjavíkurflugvelli 11.01.2007 er hægt að nálgast
hér.
Fleiri skýrslur er hægt að nálgast á heimasíðu RNF
www.rnf.is13.01.2009 09:26
Miðvikudagskvöldið 21. janúar kl. 20:00 verður Baldur Sveinsson með skemmtilega flugmyndasýningu í félagsaðstöðu Geirfugls í Fluggörðum. Baldur ætlar að sýna skemmtilegt safn af gömlum góðum flugljósmyndum frá síðustu ca. 50 árum sem bæði hann sjálfur og aðrir hafa tekið. Má m.a. nefna myndir af DC-3, DC-4, DC-6, DC-8, Katalínum o.fl. o.fl. Eða eins og Baldur orðaði sjálfur þá verður þarna ýmislegt "gúmmelaði" af harða disknum. Það skal tekið fram að þarna verða sýndar margar myndir sem ekki hafa verið sýndar áður.
Að sýningunni standa: Flugfélagið Geirfugl, Flugklúbburinn Þytur og Félag Íslenskra Einkaflugmann.

TF-AKK Ljósm. Baldur Sveinsson
04.01.2009 13:33
Í myndaalbúmið okkar eru nú komnar myndir frá hinum ýmsu flugviðburðum s.l. sumars, má þar m.a. nefna Opinn dag í Fluggörðum 15. maí, Flugdag FMÍ 24. maí, hópflug á Blönduós og Vestfirði 31. maí, Safnaflug FÍE 14. júní, Flugkoma FMÍ á Hellu 19. júlí og svo myndir frá Múlakoti en það er bæði að finna Flugkomu FÍE um Verslunarmannahelgina og einnig flug með krabbameinsveik börn helgina áður.
Á heimasíðu Flugklúbbs Selfoss er að finna myndir frá gamlársdagsfluginu þeirra en 18 vélar tóku þátt að þessu sinni.
02.01.2009 21:18
121,5 MHz Neyðarsendar og endalok þeirra.
Opinberlega verður hætt að hlusta á 121,5 MHz neyðarsendana 01. febrúar 2009, hér á Íslandi verður þó áfram hlustun amk til að byrja með sem virkar í nágrenni Reykjavíkur, inn á Suðurlands undirlendið og upp í Borgarfjörð. Einnig verður hlusutn í Eyjafirði. Aðrir staðir á landinu detta út en flugvélar munu áfram hlusta á 121,5 MHz.
Undanþága verður með einkaflugvélar á Íslandi sem voru skráðar fyrir 01.07.2008 að taka upp 406 MHz til 01.02.2010.