23.12.2008 09:20
Flugvélar 2008 - Flugmyndabók eftir Baldur Sveinsson
Nú er komin út splunku ný og stór glæsileg flugmyndabók eftir Baldur Sveinsson "Flugvélar 2008" er hún önnur bókin sem Baldur gefur út en árið 2007 kom út bókin "Flugvélar á og yfir Íslandi".
Þessi glæsilega bók Baldurs veitir frábæra sýn á grasrótina í flugi á Íslandi í dag. Bókin er 120 blaðsíður með um 150 flugmyndum. Allar myndirnar voru teknar á árinu 2008. Í bókinni má finna myndir frá flugferðum, flugdögum, flugsamkomum, heimsóknum frægra flugvéla ásamt loftrýmisgæslu o.fl.
Guðni Þorbjörnsson FKM sér um sölu bókarinnar og er hægt að panta beint hjá honum í síma 897-7738 og einnig í tölvupósti gudni@gudni.is

17.12.2008 08:36
Cospas-Sarsat gervihnattakerfið hættir að vinna úr merkjum neyðarsenda á tíðninni 121,5/243 MHz.
Skiptið í 406 MHz !
Alþjóðlega Cospas-Sarsat gervihnattakerfið mun hætta að vinna úr merkjum neyðarsenda á 121,5/243 MHz frá 1. febrúar 2009. Allir eigendur og notendur neyðarsenda ættu að byrja að undirbúa að skipta út neyðarsendum á 121,5/243 MHz og setja í staðinn 406 MHz neyðarsenda eins fljótt og auðið er. Gott tækifæri til að kaupa 406 MHz neyðarsendi er þegar þarf að endurnýja rafhlöðurnar í 121,5/243 MHz sendinum þínum. Þessar rafhlöður þarf einmitt að endurnýja á 5 ára fresti. Því fyrr sem þú skiptir út gamla neyðarsendinum, því betri þjónustu getur Cospas-Sarsat kerfið veitt þér, ef sendirinn þinn er settur í gang í neyðartilfelli.
Á árinu 2009 mun Cospas-Sarsat gervihnattakerfið aðeins nema merki frá 406 MHz neyðarsendum. Þetta á við alla neyðarsenda fyrir siglingar (EPIRB), alla neyðarsenda fyrir flug (ELT) og alla neyðarsenda sem eru í einkaeigu (PLB). Annar búnaður eins og ("maður fyrir borð" búnaður og miðunar sendar) sem vinna á 121,5 MHz og eru ekki háðir gervihnattamóttöku, munu samt sem áður ekki verða fyrir áhrifum af því að úrvinnslu á gervihnattamerkjum á 121,5 MHz verður hætt.
Afhverju að skipta ?
Cospas-Sarsat ákvað að hætta gervihnatta-úrvinnslu merkja frá neyðarsendum á 121,5/243 MHz í samráði við Alþjóða flugmálastofnuninni (ICAO) og Alþjóða siglingamálastofnuninni (IMO). Þessar stofnanir Sameinuðu þjóðanna fara með stjórn þeirra öryggiskrafna sem gerðar eru fyrir flugvélar og skip, og hafa staðfest takmarkaða eiginleika 121,5/243 MHz neyðarsendanna og yfirburðar eiginleika 406 MHz neyðarkerfisins.
Aðeins ein af 50 neyðarsendingum á 121,5/243 MHz er raunverulegt neyðartilvik. Þetta hefur í för með sér veruleg áhrif á vinnu leitar- og björgunarstöðva (SAR). Hægt er að draga verulega úr fölskum neyðarsendingum með notkun 406 MHz neyðarsendanna (1 af 17 reynast raunveruleg) og þegar neyðarsendir er rétt skráður þá er einfalt með einu símtali til skráðs eiganda hans, í samræmi við kóðaðar upplýsingar neyðarsendisins, að ganga úr skugga um hvort um raunverulega neyð geti verið að ræða. Þar af leiðandi fá raunveruleg atvik viðeigandi viðbrögð.
Þegar neyðarmerki frá 406 MHz neyðarsendi eru móttekin geta stjórnendur björgunarmála kallað fram upplýsingar úr skráningar gagnagrunni. Í honum er að finna upplýsingar um eiganda neyðarsendisins og hvernig má ná sambandi við hann, aðila vegna neyðar og upplýsingar um einkennisstafi skips/flugvélar.
Með þessum upplýsingum geta leitar- og björgunarstjórnendur brugðist við á viðeigandi hátt.
Tryggið að 406 MHz neyðarsendirinn sé rétt og örugglega skráður.
Stafrænu (digital) 406 MHz neyðarsendarnir hafa marga kosti fram yfir hliðrænu (analog) 121,5/243 MHz neyðarsendana. Möguleiki er að endurvarpa staðsetningum frá 406 MHz neyðarsendi til björgunarstöðva, fyrr, af meira öryggi og með meiri nákvæmni.
|
|
406 MHz neyðarsendir |
121,5/243 MHz neyðarsendir |
|
Merki |
Stafrænt: Sérstakt einkenni, skráningarupplýsingar sem gefa upplýsingar um eiganda skips eða flugvélar. |
Hliðrænt: Engar upplýsingar forritaðar, fleiri falskar neyðarsendingar |
|
Styrkur merkis |
5 W púls |
0,1 W stöðugt |
|
Svæðisdekkun |
Hnattrænt |
Svæðisbundið |
|
Staðsetningarnákvæmi |
Doppler: 5 Km. GNSS (GPS) 100 m ef staðsetning er kóðuð í sendinguna |
Innan 20 Km (aðeins Doppler). |
|
Viðbragðstími |
GEO (staðbundinn gervihnöttur): Innan 5 mínuútna |
Biðtími sporbrautarhnatta (LEO) 45 mín meðaltími |
|
Áreiðanleiki staðsetningar |
Niðurstaða möguleg frá einu gervitungli |
Þarf 2 yfirflug gervihnatta til að fá rétta staðsetningu. |
LHG birti á heimasíðu sinni.
12.12.2008 10:21
Kári Guðbjörnsson flugstjóri framleiðir hvítvín í Móseldalnum.
Gaman að sjá auka búgrein Kára og fjölskyldu hans en Kári starfar sem flugstjóri hjá Cargolux en fæst í frítíma sínum ásamt fjölskyldu sinni að framleiða eðal hvítvín. Vínið sem unnið er úr Riesling þrúgum er hálfþurrt og fæst nú annað árið í röð í Vínbúðum ÁTVR. Lesa má viðtal við Kára í skjalinu "blindflug" hér fyrir neðan.
Á Jólagleði FÍE í kvöld verður gefið smakk af þessu fína "Eðal" víni Kára & Co.
blindflugViðtal við Kára er einnig að finna í Fréttablaðinu í dag.
Einnig er hægt að sjá heimasíðu Kára og fjölskyldu: http://web.mac.com/kariflug/Site/Velkomin.html
10.12.2008 14:21
Í flokkum hér efst vinstra megin á síðunni okkar er hægt að velja flokkinn "Greinar um BIRK" en þar verður að finna nokkrar af þeim blaðagreinum sem hafa verið ritaðar með Reykjavíkurflugvelli.
Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri á Hornafirði.
Kristján Sveinbjörnsson
Arnar Sigurmundsson
10.12.2008 13:06
Við höfum ákveðið að halda Flugfréttum gangandi amk um sinn, en viljum endilega fá ábendingar frá lesendum hvað þið viljið sjá á síðunni okkar. Eins og áður verðum við með fréttir af því sem er að gerast í grasrótinni og skiptir þá ekki máli hvort heldur er vélflug, fisflug og svifflug. Einnig ætlum við að prófa okkur áfram með erlendar fréttir og þá helst frá Avweb.com fréttasíðunni og svo má alls ekki gleyma myndaalbúminu okkar en þar verða bæði nýjar og eldri myndir frá hinum ýmsu flugviðburðum.
valur@islandia.is
08.12.2008 09:23
| Eclipse Files For Bankruptcy Protection |
|
By Russ Niles, Editor-in-Chief
Eclipse Aviation filed for Chapter 11 bankruptcy protection today and it appears ETIRC, the company controlled by current CEO Roel Pieper, is moving to consolidate its hold on the troubled planemaker. According to a news release from Eclipse, the company is "seeking court approval for debtor-in-possession (DIP) financing and procedures for the sale of substantially all of its assets under Section 363 of the U.S. Bankruptcy Code." At the same time, it announced it has a buyer for the assets, described as "an affiliate of ETIRC Aviation S.a.r.l., Luxembourg" and that the deal is subject to "higher offers." According to court documents filed by Eclipse in support of the petition, the company owes investors about $577 million and has racked up about $135 million in debt to vendors and suppliers.
"In the face of unprecedented economic challenges, it is clear that the sale of the Eclipse business through the Chapter 11 process is the right course of action to maximize the value of the business, secure its future and protect the best interests of Eclipse's stakeholders, including customers, suppliers, employees and creditors," Pieper is quoted as saying in a release. "The successful sale will position the business for aggressive global expansion, allowing the company to fulfill its promise and solidify its position as the world's leading manufacturer of VLJs."
And to address the current cash crunch, Pieper has cut a deal with existing shareholders and lenders to keep the company alive in the interim. The company is asking the Delaware court, where the petition was filed, to approve the interim financing package quickly so Eclipse can honor its commitments. Once approved, this financing, along with other relief requested from the court, will position Eclipse to pay wages and salaries, honor employee benefits, service customer aircraft and continue manufacturing operations throughout the sale period.
The company also announced that Peg Billson, president and manager of the company, has resigned "to pursue other career opportunities."
Avweb