19.11.2008 12:27
Mynddiskurinn Íslenskir Atvinnuflugmenn er án efa jólagjöf allra flugmanna í ár.
Diskurinn er stútfullur af góðum viðtölum við margar gamlar og yngri kempur eins og Þórólf Magnússon, Hörð Guðmundsson, Otto Tynes, Smára Karlsson, Dagfinn Stefánsson o.fl. ásamt skemmtilegu aukaefni.
Hægt er að panta myndina í síma : 691-8338 eða senda tölvupóst á netfangið dabbfilms@gmail.com

17.11.2008 19:26
KEILIR KAUPIR FLOTA NÝRRA KENNSLUVÉLA
Runólfur Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis og Christian Dries, forstjóri Diamond Aircraft Industries, skrifuðu undir kaupsamning um 5 nýjar kennsluvélar fyrir Flugakademíu Keilis í Vínarborg í gær. Kaupverð vélanna, tæpar 200 milljónir króna, er að mestu fjármagnað af seljanda ásamt Bank Austria. Möguleiki er á að bæta öðrum 5 vélum við samninginn árið 2009.
Diamond flugvélar, sem framleiddar eru í Austurríki og Kanada, eru á meðal fullkomnustu og öruggustu kennsluvéla í heimi. Þær eru m.a. notaðar af bandaríska flughernum til grunnþjálfunar flugmanna.
Um er að ræða tvær DA20 tveggja manna vélar, tvær DA40 fjögurra manna vélar og eina DA42 tveggja hreyfla fjögurra manna vél með afísingar- og blindflugsbúnaði. Vélarnar eru allar búnar stýripinna og stærri vélarnar eru jafnframt búnar stafrænum stjórntækum og mælaborði. Diamond vélar eru knúnar umhverfisvænum og sparneytnum díselhreyflum.
Fystu vélarnar koma til landsins eftir mánuð en þær síðustu í janúar næstkomandi. Bóklegt einkaflugmannasnám hefst hjá Flugakademíu Keilis nú um mánaðamótin en Flugakademían er hluti af Samgöngu- og öryggisskóla Keilis, sem Hjálmar Árnason stýrir.
www.keilir.net