Flokkar:

Flugfréttir.is
Flugfréttir er fréttasíða um grasrót flugsins.


22.11.2011 23:31

Ályktun á Landsþingi Sjálfstæðisflokksins s.l. helgi

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á Landsþingi Sjálftstæðisflokksins um s.l. helgi og er það okkur grasrótar fólki sönn ánægja að hún skuli vera svo afdráttarlaus bæði hvað varðar flugvöllinn í Vatnsmýrinni og það reglugerðar fargan sem við höfum verið að berjast við.

Samgöngur í lofiLandsfundur leggur áherslu á að Reykjavíkurflugvöllur gegnir lykilhlutverki sem miðstöð sjúkra- og

innanlandsflugs. Flugvellinum skal því tryggð áframhaldandi aðstaða í Vatnsmýrinni og hið fyrsta skal hefjast handa við byggingu flugstöðvar. Grunnforsenda er að þar séu reknar tvær flugbrautir til frambúðar

Landsfundur leggur áherslu á að innanlandsflug verði með svipuðu sniði og verið hefur og áfram verði stutt við flugleiðir til jaðarbyggða, þó þannig að hagkvæmni sé gætt í hvívetna.

Íþyngjandi reglugerðir geta orðið þess valdandi að einkaflug á Íslandi leggist af. Leita þarf lausna nú þegar.

Keflavíkurflugvöllur er miðstöð millilandaflugs á Íslandi og þarf að þróast sem slíkur. Halda þarf áfram upp byggingu flugvallanna í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum og þróun þeirra sem varavellir

Kefla víkurflug vallar og til eflingar á millilandaflugi. Rýmka þarf heimildir til að sinna millilandaflugi þar sem aðstæður leyfa á lands byggðinni og auka þar með möguleika í ferðaþjónustu.

Lokað fyrir athugasemdir


clockhere

Um:

Ritstjóri: Valur Stefánsson Ljósmyndarar: Valur Stefánsson valur66@gmail.com Guðlaugur Agnar gudlauguragnar@gmail.com Valur Pálmi valurpalmi@internet.is

Tenglar