Flokkar:

Flugfréttir.is
Flugfréttir er fréttasíða um grasrót flugsins.


08.01.2012 22:13

Flugið 9.tbl

9 tölublað Flugsins er komið út og fyrir þá sem ekki eru með það í áskrift að fara inn á heimasíðu þess www.flugid.is og skrá sig í áskrift, einnig er hægt að kaupa eldri blöð á vægu verði.  

Flugfréttir óskar þeim Kjartani Jónssyni, Guðmundi St. Sigurðssynig og Haraldi Diego kærlega til hamingju með glæsilegt blað og minnum flugáhugafólk allt að það er okkar skylda að styðja við útgáfu þess.  



Lokað fyrir athugasemdir

22.11.2011 23:31

Ályktun á Landsþingi Sjálfstæðisflokksins s.l. helgi

Eftirfarandi ályktun var samþykkt á Landsþingi Sjálftstæðisflokksins um s.l. helgi og er það okkur grasrótar fólki sönn ánægja að hún skuli vera svo afdráttarlaus bæði hvað varðar flugvöllinn í Vatnsmýrinni og það reglugerðar fargan sem við höfum verið að berjast við.

Samgöngur í lofiLandsfundur leggur áherslu á að Reykjavíkurflugvöllur gegnir lykilhlutverki sem miðstöð sjúkra- og

innanlandsflugs. Flugvellinum skal því tryggð áframhaldandi aðstaða í Vatnsmýrinni og hið fyrsta skal hefjast handa við byggingu flugstöðvar. Grunnforsenda er að þar séu reknar tvær flugbrautir til frambúðar

Landsfundur leggur áherslu á að innanlandsflug verði með svipuðu sniði og verið hefur og áfram verði stutt við flugleiðir til jaðarbyggða, þó þannig að hagkvæmni sé gætt í hvívetna.

Íþyngjandi reglugerðir geta orðið þess valdandi að einkaflug á Íslandi leggist af. Leita þarf lausna nú þegar.

Keflavíkurflugvöllur er miðstöð millilandaflugs á Íslandi og þarf að þróast sem slíkur. Halda þarf áfram upp byggingu flugvallanna í Reykjavík, á Akureyri og á Egilsstöðum og þróun þeirra sem varavellir

Kefla víkurflug vallar og til eflingar á millilandaflugi. Rýmka þarf heimildir til að sinna millilandaflugi þar sem aðstæður leyfa á lands byggðinni og auka þar með möguleika í ferðaþjónustu.

Lokað fyrir athugasemdir

20.11.2011 00:28

Flugvél til sölu

TF-RJC Piper PA-28
Árgerð 1979
Raðnr: 28-7990231
Vélin er sérstaklega falleg, ávallt verið geymd í upphituðu skýli og verið hugsað mjög vel um hana. 
Vélin er mjög vel tækjum búin. 

TTAF: 2.400 hrs
TTEN: ca. 220 hrs s/n
TTPR: ca. 1.010 hrs
Lofthæfiskírteini rennur út 25.07.2012

Verð kr. 6.000.000 
Price: 51.000.000 USD. 

Frekari upplýsingar gefa: 
Ólafur Nilsson  s: 893-2440
Ágúst Karlsson s: 892-2020


Ljósm: Baldur Sveinsson
Lokað fyrir athugasemdir

11.09.2011 20:31

Myndir frá Flugsýningu FMÍ

Myndir frá Flugsýningu Flugmálafélags Íslands eru komnar inn í myndaalbúmið okkar og fleiri myndir væntanlegar. 



Eins og sjá má þá var mikill fjöldi sem mætti og er talið að þetta sé með allra fjölmennustu Flugsýningum sem haldnar hafa verið á Reykjavíkurflugvelli.
Lokað fyrir athugasemdir

08.09.2011 14:11

Flugsýning FMÍ á Reykjavíkurflugvelli

Flugsýning Flugmálafélags Íslands í samstarfi við Ísavía og Icelandair verður haldin á Reykjavíkurflugvelli, 10. September kl. 12-16 við Hótel Loftleiðir (Hótel Natura). 

 

·         Flugvélar af öllum stærðum og gerðum

·         Flugsýning kl. 13-15

·         Fallhlífarstökk

·         Svifflug

·         Sýningarflug á Þristinum

·         Módelflug

·         Farþegaþota Icelandair Boeing 757, lending, flugtak og yfirflug.

·         Listflug

·         Þyrluflug

·         Paramótorflug

·         Fisflug

·         Sýningarflug Landhelgisgæslunnar.

 

Aðgangur ópeypis.

Komið og upplifið Íslenska flugævintýrið á Reykjavíkurflugvelli.

 

Lokað fyrir athugasemdir

05.09.2011 23:31

Pétursbikarinn

Pétursbikarinn hin árlega lendingarkeppni Flugklúbbs Selfoss verður haldin næstkomandi miðvikudag 7. september og hefst kl. 18:00. Allir sem flygildi geta valdið eru hvattir til að mæta, taka þátt og hafa gaman af.

Sjá nánar á www.flugklubbur.is

 

Lokað fyrir athugasemdir

24.08.2011 23:44

Wings´n Wheels

Lokað fyrir athugasemdir

24.08.2011 21:03

Thoroddsenbikarinn úrslit

Í gær var öðru sinni keppt um Thoroddsen farandbikarinn en keppnin er haldin til minninga um Atla heitinn Thoroddsen flugstjóra.  Í ár voru 29 þátttakendur og fjöldinn allur af áhorfendum sem skemmtu sér vel að horfa á flugkappana í þessari hörðu keppni.  Icelandair styrkti keppnina eins og í fyrra og var boðið upp á grillaðar pylsur og gos.  

Nafn Flugvél  Refsistig
 Jóhannes Jóhannesson  TF-KAJ 9
 Haukur Arngrímsson TF-SKN 28
 Arnar Emilsson TF-KAJ 36
 Kristján Sveinbjörnsson TF-SAA 37
 Hafsteinn Jónasson TF-PAC 43
 Einar Dagbjartsson TF-KAF 66
 Dagbjartur Einarsson TF-ISE 72
Ingvar Valdimarsson TF-KAK 99 
 Óli Öder TF-151 102
 Jóhann Þórir Gunnarsson    TF-BAA  180        
 Arnar Jónsson TF-KAJ 182
 Tómas Dagur Helgason TF-KAJ 190
 Valur Stefánsson TF-STR 215
 Þráinn Hafsteinsson TF-LMB 215
 Sigurður Ingi Jónsson TF-KAR 223
Kári Kárason                         TF-KAJ  227         
 Ólafur Helgi TF-GMG 229
 Sigurður Halldórsson TF-KAS 230
 Birgir Birgisson TF-SKN 250
 Torfi Sigurjónsson TF-STR 258
 Agnar Ingvarsson TF-ISE 274
 Frosti Heimisson TF-134 285
 Björn Ásbjörnsson TF-STR 300
Daði Freyr                              TF-FTM   334        
 Sigurjón Sindrason TF-137 349
Ágúst Jóel Magnússon TF-KAJ 351
Þorsteinn Jónsson TF-KAJ 427
Guðjón Þorkelsson TF-BAA 435
 Helgi Jóhannesson TF-TOD 645

Það var Ásta Hallgrímsdóttir ekkja Atla heitins sem afhendi þeim félögum í fyrstu þremur sætunum glæsilega verðlaunagripi. 



Einnig var keppt um styðsta flugtakið og var það Þorsteinn Jónsson á TF-KAJ sem var þar hlutskarpastur. 

Fleiri myndir frá keppninni eru í myndaalbúmi Flugfrétta.
Lokað fyrir athugasemdir

21.08.2011 14:36

Thoroddsen bikarinn 2011

Lokað fyrir athugasemdir

20.08.2011 21:53

Hópflug í Eyjar

Í dag var farið í hópflug til Vestmannaeyja en tilefnið var að þann 14. ágúst voru 65 ár frá því fyrsta flugvélin lenti á flugvellinum í Eyjum en það var TF-KAK og flugmenn voru þeir Halldór Bech og Hjalti Tómasson.  Í dag var TF-KAK í broddi fylkingar en alls voru 21 flugvél í hopnum og stemmingin frábær. 

Í myndaalbúminu okkar eru nokkrar myndir frá ferðinni og fleiri eiga eftir að bætast við.

Hægt er að sjá video frá fluginu Bakki - Eyjar hér  gæðin eru kanski ekki upp á sitt besta en tökum viljan fyrir verkið. 

Lokað fyrir athugasemdir

20.08.2011 21:51

75 ára afmæli Svifflugsfélagsins

Haldið var uppá 75 ára afmæli Svifflugfélags Íslands á sólríkum
degi. Þrátt fyrir svolítinn gust var talsvert fjölmenni. Minnisvarði til
heiðurs Agnari Kofoed-Hansen aðalhvatamanns að stofnun Svifflugfélagi Íslands
var afhjúpaður. Agnar Kofoed-Hansen var fyrsti formaður félagsins. Á
minnisvarðanum er lágmynd og m. a. ummæli A. K.-H. um að svifflug sé fegursta
íþrótt sem til er. Gullmerki voru afhent Þórmundi Sigurbjarnasyni, Sverri
Thorlákssyni og Þorgeiri Pálssyni. Verðlaun voru afhent fyrir besta árangurinn
á Íslandsmótinu, í fyrsta sæti var Steinþór Skúlason, í öðru sæti Kristján
Sveinbjörnsson og því þriðja var Daníel Stefánsson. Eftir kaffi flugu ýmsar
vélar þar sem menn sýndu listir sínar.

Magnús Norðdahl kom á Zlin-inu sínu og sýndi listflug, Benni
Thors kom á Þristinum og flaug listavel í hanginu. Þetta er án vafa fyrsta og
ef til vill eina sinn sem DC 3 flýgur hangflug í Vífilfelli. Þarna var
greinilega maður sem þekkti umhverfið vel. Síðar kom Benni Thors aftur og nú á
Pits vélinni og sýndi ýmsar kúnstir. Þannig sóttu margir félagið heim, akandi
og fljúgandi. Bæjarstjórinn í Kópavogi flaug með Krisjáni formanni og var í
skýjunum, þótt hún væri lent og hafði reyndar haft orð á því fyrr um daginn að
þetta væri eini flugvöllurinn í Kópavogi.

Nokkrar myndir frá deginum er að finna í albúminu okkar.
Hægt er að sjá video frá yfirflugi Þristsins hér

Lokað fyrir athugasemdir

10.08.2011 21:18

Reynum aftur að fara í Eyjarnar

Þann 14. Ágúst voru 65 ár frá því að fyrsta flugvélin lennti á flugbrautinn í Vestmannaeyjum en það var TF-KAK og flugmenn voru þeir Hjalti Tómasson og Halldór Bech. Tóku þeir í fyrsta sinn póst frá Eyjum loftleiðis.  Daglegt áætlunarflug hófst svo skömmu síðar eða 12. Október ávegum Loftleiða. Síðastliðinn sunnudag, 14. ágúst, stóð til að minnast þessara tímamóta og fara í hópflug til Eyja, en ekki varð af því vegna veðurs.  
Reynt verður aftur um þessa helgi, annað hvort á laugardag eða sunnudag, mæting verður á Bakka flugvelli kl. 13:00 og svo verður farið yfir sundið og að sjálfsögðu fer TF-KAK Piper J-3 Cub fremstur í broddi fylkingar og flugsveitarfori
?ngi verður Otto Tynes (893-8198) og veitir upplýsingar um endanlegan brottfarartíma. Eyjamenn taka að sjálfsögðu vel á móti hópnum eins og þeirra er von og vísa.



Otto Tynes stolltur við TF-KAK.

Lokað fyrir athugasemdir

08.08.2011 00:42

Einkaflugvél hlekktist á

MBL.IS greindi frá því í kvöld að lítil einkaflugvél hefði hlekkst á í lendingu á flugvellinum á Lambanesi í Fljótum í kvöld.  Þrír voru í vélinni og hlutu þeir skrámur í óhappinu.  Sjá nánar á vef mbl.is hér.
Lokað fyrir athugasemdir

02.08.2011 23:47

TF-MAY kveður

Eiríkur Þór Eiríksson hefur selt Cessnu Skyhawk vél sýna TF-MAY til Frakklands, í dag lögðu þeir félagar Sigurður Ásgeirsson og Guðjón Jóhannesson af stað með vélina fyrsta legginn sem er til Hornafjarðar en í fyrramálið halda þeir áfram til Wick í Skotlandi en loka áningastaður er Swiss. 

Flugfréttir óskar þeim félögum góðrar ferðar.  

Hægt verður að fylgjast með ferð þeirra félaga á eftirfarandi vef: (sjá hér)

http://share.findmespot.com/shared/faces/viewspots.jsp?glId=0rKH1esZZbyKkJmqEX0iblOQYYnY3NkEK


Eiríkur ásamt ferju flugmönnunum þeim Sigga og Guðjóni. 


ferjutankur 180ltr. 
Lokað fyrir athugasemdir

25.07.2011 16:25

Flugkoma FÍE í Múlakoti

Lokað fyrir athugasemdir


clockhere

Um:

Ritstjóri: Valur Stefánsson Ljósmyndarar: Valur Stefánsson valur66@gmail.com Guðlaugur Agnar gudlauguragnar@gmail.com Valur Pálmi valurpalmi@internet.is

Tenglar